Byggingarréttur á röngum forsendum 5. október 2007 10:44
Með hagsmuni almennings að leiðarljósi vill Skipulagsstofnun vekja athygli á að auglýsing á vegum Kópavogsbæjar og Símans, sem birst hefur að undanförnu í fjölmiðlum um úthlutun á byggingarrétti fyrir íbúðarhús í Vatnsendahlíð í Kópavogi, byggir á röngum forsendum. Í auglýsingunni og á vefsíðunni kopavogurlodir.is, lítur út sem svæðið sé skipulagt fyrir íbúðarbyggð. Svo er ekki þar sem svæðið er skipulagt sem vatnsverndarsvæði. "Áður en byggingarréttur fyrir íbúðarlóðir verður til þarf að auglýsa og kynna breytingu á gildandi skipulagi svæðisins. Á svæðinu er í gildi svæðisskipulag sem auk samþykkis Kópavogsbæjar er háð samþykki annarra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Jafnframt þarf Kópavogsbær að auglýsa tillögu að aðalskipulagsbreytingu og nýju deiliskipulagi fyrir svæðið. Breyting á svæðis- og aðalskipulagi svæðisins er einnig háð staðfestingu umhverfisráðherra. Lögformlegt skipulagsferli vegna íbúðarbyggðar í Vatnsendahlíð er ekki hafið." segir í tilkynningu frá Skipulagsstofnun Smári Smárason skipulagsstjóri Kópavogsbæjar segir að sér komi þessi yfirlýsing Skipulagsstofnunnar á óvart. "Við höfum lagt fyrir Skipulagsstofnun ósk um breytingar á skipulaginu á þessu svæði," segir Smári í samtali við Vísi. "Og við tókum sérstaklega fram í þessum auglýsingum okkar að sá fyrirvari er á úthlutun að eftir á að samþykkja breytingu á deiliskipulaginu." Skipulagsstofnun segir aftur á móti að þann 18. september sl. hafi hún gert formlega athugasemd við Kópavogsbæ vegna framangreindrar auglýsingar. "Þar sem Kópavogsbær hefur að engu haft þær athugasemdir sér Skipulagsstofnun sig knúna til að vekja athygli á málinu og upplýsa umsækjendur um að byggingarréttur sem nú er til úthlutunar og sölu í Vatnsendahlíð á sér ekki nauðsynlega lagastoð í skipulagi," segir í tilkynningunni.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira