Vorum bestu vinir þangað til hann byrjaði í neyslu 5. október 2007 09:08 Brynjar ætlar að halda minningu Guðjóns bróður síns lifandi.
Guðjón Guðmundsson lést í fangelsi í Kaupmannahöfn í síðasta mánuði. Hann var einungis 32 ára gamall. Bróðir hans, Brynjar Karl Guðmundsson, hefur sett upp svokallaða MySpace síðu til að minnast hans. Í samtali við blaðamann Vísis sagðist Brynjar hafa sett upp síðuna til þess að halda minningu bróður síns lifandi. „Við vorum bestu vinir þangað til að hann byrjaði í neyslu og héldum alltaf sambandi. Ég ætla ekki bara að minnast hans núna heldur ætla ég að reyna að halda minningu hans á lofti eins lengi og ég get," segir Brynjar. Brynjar segist ekki vita mikið um aðdraganda þess að bróðir hans lést. „Ég veit í raun ekkert meira en hver annar. Þetta kom mér í raun á óvart. Hann var búinn að eiga erfiða ævi en um það leyti sem hann dó var útlitið bjart hjá honum. Hann var nýbúinn að frétta að dómurinn yfir honum yrði mun styttri en hann hafði gert ráð fyrir í byrjun. Mamma og pabbi voru á leiðinni í heimsókn til hans, þannig að þetta leit allt saman ágætlega út, " segir Brynjar. Fíkniefnaheimurinn er harður. Þekkt er að menn hafi verið beittir miklu ofbeldi og jafnvel verið myrtir vegna fíkniefnaskulda. Brynjar segist eiga bágt með að trúa því að bróðir hans hafi framið sjálfsmorð. Hann viti ekkert með fullri vissu fyrr en hann sjái kveðjubréf eftir hann. „Ég veit ekki til þess að nokkur hafi fyrirfarið sér án þess að skilja eftir svoleiðis bréf," segir hann. Brynjar segir að Guðjón hafi dvalið í Danmörku í nokkra mánuði áður en hann fór í fangelsi. „Ég var að vona að hann gæti farið þangað til að hefja nýtt líf. Hann átti dóttur þarna sem honum þótti mjög vænt um og reyndi að eyða eins miklum tíma með og hann gat," segir Brynjar Það er augljóst á viðbrögðunum sem Brynjar fær frá vinum þeirra bræðra á MySpace síðunni að Guðjón hefur átt marga að sem þóttu vænt um hann. Þar er honum lýst sem yndislegum strák og góðum dreng sem alltaf hafi verið gaman að vera í kringum. En fíkniefnadraugurinn er erfiður fjandi að berjast við.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira