Erlend glæpagengi ræna verslanir hér á landi 4. október 2007 18:13
Helga Arnardóttir skrifarErlend glæpagengi ræna íslenskar verslanir með skipulögðum hætti segir formaður Samtaka verslunar og þjónustu. Útlendir þjófar eru stórtækari en Íslendingar, sem stela hins vegar mun oftar en útlendingar. Öryggisfræðingur náði að stela fyrir hundrað þúsund krónur úr fimm búðum á hálftíma.Fjórtán Litháar voru handteknir í gær vegna gruns um umfangsmikinn búðarþjófnað í verslunum á höfuðborgarsvæðinu. Mikið magn af dýrum útivistarfatnaði, tölvum, tölvubúnaði og snyrtivörum fannst á heimilum þeirra. Mennirnir hugðust selja þýfið og senda til Litháens. Lögreglan stöðvaði póstsendingu þangað fyrir skömmu. Níu þeirra voru úrskurðaðir í viku gæsluvarðhald og fjórir í farbann. Samtök verslunar og þjónustu ákváðu að bregðast við þessum fréttum í dag. Sigurður Jónsson formaður Samtaka verslunar og þjónustu segir að erlendar glæpaklíkur stundi það að stela úr verslunum hér á landi. Frá árinu 2005 hefur orðið 70% aukning á þjófnuðum þar sem útlendingar eiga í hlut. Tölur frá samtökunum sýna að 20% allra þjófa séu útlendingar en þeir steli fyrir hærri upphæðir. Áætlað er að meðalþjófnaður Íslendinga sé um 2500 krónur á mann en útlendinga rúmlega 30.000 krónur. Samtökin hvetja verslunarmenn til að herða eftirlit.Eyþór Víðisson öryggisfræðingur starfar fyrir verslanir og segir margar glufur í öryggiskerfum þeirra. Í vettvangsferð sinni náði hann að stela fyrir hundrað þúsund krónur úr fimm búðum í verslunarmiðstöð á höfuðborgarsvæðinu á hálftima. Eyþór segir árvökult starfsfólk bestu forvörnina gegn þjófnuðum og brýnt sé að það fái rétta þjálfun til að taka á þeim málum.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira