Innlent

Jónína Benediktsdóttir fær 500 þúsund í skaðabætur

Hæstiréttur Íslands dæmdi í dag Jónas Kristjánsson og Mikael Torfason, fyrrum ritstjóra DV, til að greiða Jónínu Benediktsdóttur hálfa milljón króna í miskabætur. Að auki var ritstjórunum gert að greiða hvor um sig 150 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs.

Jónína höfðaði mál á hendur á DV eftir að blaðið fjallaði um einkalíf hennar í septembermánuði árið 2005. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Jónínu í vil í desember á síðasta ári og gerði ritstjórunum að greiða henni 500 þúsund krónur í miskabætur fyrir að brjóta gegn friðhelgi einkalífs hennar. Jónína krafðist 5 milljóna króna í miskabætur.

Málinu var áfrýjað í janúar á þessu ári og í dag staðfesti Hæstiréttur niðurstöðu héraðsdóms.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×