Bjarni verður ekki skipaður í eftirlitssveitina á Sri Lanka 4. október 2007 11:11 Bjarni Vestmann hittir leiðtoga Tamíltígra. Myndin er tekin af heimasíðu Tamíltígra.
Bjarni Vestmann, sendifulltrúi hjá utanríkisráðuneytinu var staddur á Sri Lanka til þess að kynna sér starfssemi og vinnuaðstæður norrænu vopnaeftirlitssveitanna í landinu. Til stóð að tilnefna hann í stöðu hjá sveitunum en af því verður ekki vegna þess að hann hitti leiðtoga Tamíltígrana án heimildar frá ráðuneytinu. Gréta Gunnarsdóttir hjá utanríkisráðuneytinu staðfestir í samtali við Vísi að yfirvöld á Sri Lanka hafi lýst áhyggjum sínum yfir heimsókn Bjarna á yfirráðasvæði Tamíltígrana. „Utanríkisráðherra Sri Lanka átti samtal við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttir utanríkisráðherra í gærkvöldi og í framhaldi af því samtali sendu íslensk yfirvöld frá sér bréf þar sem beðist var afsökunar á atvikinu. Fundi ráðherranna lauk á vinsamlegum nótum" segir Gréta. Hún segir að Bjarni hafi farið í heimsóknina í fylgd með norrænum eftirlitsmönnum en að aldrei hafi staðið til að Bjarni myndi hitta fulltrúa deiluaðila á eyjunni, hvorki frá Tamíltígrum né stjórnvöldum. Yfirvöld á Sri Lanka hafa krafist þess að Bjarni verði sendur heim. Gréta segir að hann leggi af stað til Íslands í kvöld og að hann verði kominn á morgun. Heimferðin sé hins vegar samkvæmt áður ákveðinni ferðaáætlun. Gréta segir að málinu sé lokið af hálfu utanríkisráðuneytisins og hún segist ekki búast við því að atvikið hafi áhrif á störf norrænu vopnaeftirlitssveitanna á Sri Lanka.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira