Gæsluvarðahaldsfangar verða vistaðir á lögreglustöðvum 4. október 2007 10:08 Fangaklefar við Hverfisgötu.
Allir gæsluvarðhaldsklefar landsins eru uppteknir í kjölfar þess að sjö litháar voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gær. Síðar í dag kemur í ljós hvort sjö félagar þeirra til viðbótar verði einnig settir í gæsluvarðhald. Erlendur Baldursson hjá Fangelsismálastofnun segir ástandið sýna fram á þá brýnu þörf sem sé á því að bæta aðstöðu til gæsluvarðhaldsvistunar. Erlendur segir í samtali við Vísi að komi sú staða upp að ekki verði hægt að koma fleirum inn þá hafi stofnunin heimild til þess að nýta sér fangaklefa á lögreglustöðvum landsins. Hann segir alveg ljós að verði litháarnir sjö sem nú eru í haldi úrskurðaðir í gæsluvarðhald þá fari þeir ekki á Litla-Hraun eða í Hegningarhúsið, þar sé allt fullt. „En það liggur í augum uppi að það þarf meiri aðstöðu fyrir gæsluvarðhald og ég vona að úr rætist fyrr en síðar," segir Erlendur. „Svipað ástand hefur áður skapast en ég man nú ekki í svipinn eftir að það hafi verið svona slæmt," segir hann. Gæsluvarðhaldsklefar landsins eru tólf í dag, tíu á Litla-Hrauni og tveir í Hegningarhúsinu. Í fyrirhuguðu fangelsi á Hólmsheiði er gert ráð fyrir fjórtán klefum fyrir gæsluvarðhald auk þess sem fangelsið verður hannað með það í huga að létt verk er að fjölga slíkum klefum ef þörfin fyrir slíkt skapast. Ómar Smári Ármannsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að plássleysi hafi engin áhrif á það hvort krafist verði gæsluvarðhalds yfir þeim sjö Litháum sem nú eru í haldi. „Það er ekki okkar mál," segir Ómar. „Ef við sjáum ástæðu til að krefjast gæsluvarðhalds þá gerum við það, við höfum aldrei sett plássleysi fyrir okkur. Það er annara að finna út úr þeim vanda."
Mest lesið Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Fleiri fréttir Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Sjá meira