Skortur á flugmönnum gæti skapað vanda í flugi 4. október 2007 08:54
Tilfinnanlegur skortur er á flugmönnum og tæknimönnum í Asíu, Afríku, Austur-Evrópu og Rússlandi og ef ekki verður tekið á honum er ljóst að áhætta skapast í flugi. Þetta kom fram í máli Williams R. Voss, framkvæmdastjóra Flight Safety Foundation, á alþjóðlegri flugöryggisráðstefnu sem lýkur í dag. Fram kemur á vef samgönguráðuneytisins að Voss hefði einnig lýst áhyggjum vegna lággjaldaflugfélaga í sumum heimshlutum sem sinntu ekki öryggismálum nægilega vel. Fram undan væri að koma á svonefndu öryggisstjórnunarkerfi í flugi og hefðu mörg flugfélög og flugvallarekendur tekið upp slíkt kerfi. Næsta skref væri að yfirvöld gerðu flugheiminum skylt að taka þau upp. Þá lýsti Voss yfir vaxandi áhyggjum af hugsanlegri hættu á árekstrum í loft og ljóst væri að sú endurnýjun á flugstjórnarkerfum beggja vegna Atlantshafsins sem framundan væri gæti haft áhættu í för með sér ef ekki tækist að samræma kerfin. Þorgeir Haraldsson, yfirflugstjóri Icelandair, á sæti í einni ráðgjafanefnd FSF, og hann segir að þrátt fyrir vöxt í íslenskri flugstarfsemi hafi ekki verið skortur á flugmönnum hjá Icelandair. Hann segir að flugmönnum félagsins hafi fjölgað mjög síðustu árin vegna aukins áætlunarflugs og síaukinna leiguflugsverkefna og meðalaldur við ráðningu hefði lækkað. Síðustu árin hafi verið sífellt erfiðara að ráða flugmenn með reynslu. Lítil reynsla nýliða og hraður uppgangur leiði óhjákvæmilega af sér reynsluminni flugstjóra. Þá segir Þorgeir innanlandsflugið hafa verið ómetanlega uppeldisstöð og góðan skóla fyrir verðandi þotuflugmenn og vonar hann að með aukinni grósku þar verði aftur hægt að búast við góðum umsækjendum þaðan. Hann segir að Icelandair hafi síðustu misserin ráðið hærra hlutfall eldri flugmanna frá öðrum félögum án þess að hvikað sé frá kröfum um hæfnispróf þrátt fyrir að þeir hafi reynslu af þotuflugi.
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Kærastinn var á staðnum Erlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Sjá meira