Innlent

Vilja að ráðherra víki úr þingsæti

Ríkisstjórn Íslands.
Ríkisstjórn Íslands. MYND/EÁ

Fjórir þingmenn hafa lagt fram frumvarp til stjórnarskipunarlaga á Alþingi þessa efnis að þingmaður sem skipaður er ráðherra skuli víkja úr þingsæti á meðan á ráðherradómi stendur. Skal varamaður taka sæti ráðherrans á Alþingi samkvæmt frumvarpinu.

Flutningsmenn frumvarpsins eru Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, Jón Magnússon, þingmaður Frjálslynda flokksins, Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokks, og Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×