Innlent

Sýknaður af ákæru um að hafa ekið á konu

MYND/E.Ól

Héraðsdómur Suðurlands sýknaði í dag karlmann af ákæru um að hafa ekið bifreið án nægilegrar aðgæslu og of hratt miðað við aðstæður og fyrir að hafa vanvirt gangbrautarrétt og ekið á konu sem var á leið yfir gangbrautina þannig að hún lærbrotnaði.

Atvikið átti sér stað á Selfossi í janúar síðastliðnum en umræddan dag var skyggni slæmt sökum snjóbyls. Þá var færð sömuleiðis léleg og mikil hálka.

Konan sagðist hafa verið á leið yfir gangbraut þegar maðurinn hefði ekið á hana og hún dregist með bílnum nokkurn spöl. Maðurinn hélt því hins vegar fram konan hefði gengið á ská yfir götuna. Hann hefði verið á 20-25 kílómetra hraða og hefði sveigt upp á umferðareyju til þess að koma í veg fyrir slys.

Dómurinn komst að því að engin ummerki hafi verið á vettvangi um að ákærði hefði ekið bifreiðinni hratt og þá virtust engin ummerki hafa sést á bifreiðinni um að konan hefði lent á henni. Þótti dómnum enn fremur sýnt að konan hefði ekki gengið yfir gangbautina og þá yrði ekki hafnað þeim framburði mannsins að konan hefði gengið utan í hægri hlið bifreiðarinnar.

Taldi dómurinn því ekki sannað að maðurinn hefði ekið ógætilega eða að maðurinn hefði virt að vettugi gangbrautarrétt. Var hann því sýknaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×