Fjórtán Litháar í haldi vegna þjófnaða í borginni 3. október 2007 15:51 MYND/GVA
Fjórtán Litháar sem taldir eru tengjast umfangsmiklum þjófnaði úr verslunum á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu eru nú í haldi lögreglunnar. Sjö þeirra voru handteknir í gærkvöld og hefur lögregla farið fram á gæsluvarðhald yfir þeim öllum. Hinir sjö voru handteknir í morgun og á eftir að taka ákvörðun um það hvort krafist verður gæsluvarðhalds yfir þeim. Ómar Smári Ármannsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að meint þýfi mannanna hafi fundist við húsleit á tveimur stöðum í austurbænum, hvort tveggja voru heimili manna sem tengjast málinu. Mun meira magn fannst í fyrri húsleitinni, þar á meðal snyrtivörur, fatnaður, tölvuhlutir og varningur úr stórmörkuðum. Einn úr hópnum var á leið úr landi og telur lögreglan víst að hann hafi ætlað að hafa hluta þýfisins með sér og selja það í heimalandinu.Ekki liggur fyrir hvort Litháarnir séu með dvalarleyfi hér á landi en verið er að kanna það. Auðvelt að stela úr íslenskum verslunum Ómar Smári segir að þessi tíðindi séu umhugsunarefni fyrir verslunareigendur og sýni eflaust nauðsyn þess að gæta betur að þjófnuðum. Fram hafi komið í yfirheyrslum lögreglu yfir erlendum þjófum að sú saga gangi þeirra á milli hversu auðvelt sé að stela úr íslenskum verslunum. Mennirnir gangi út úr búðum með vörur án þess að því sé veitt athygli. Slíkt leiði að sjálfsögðu til mikillar rýrnunar í verslunum sem aftur geti leitt til hærra vöruverðs. Því sé umhugsunarefni hvort ekki þurfi að vera meira á varðbergi.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira