Innlent

Björn opinn fyrir einkareknum fangelsum

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir ekki óeðlilegt, að þeirri spurningu sé velt fyrir sér, hvort stofna eigi með samningi til samstarfs við einkaaðila um byggingu og jafnvel rekstur fangelsa. Þessi orð lét ráðherrann falla í ávarpi sínu á Kvíabryggju í dag er kynnt var þar fjölgun á rýmum úr 14 og í 22.

"Ég tel eðlilegt, að skoðað sé til hlítar, hvort ríkið eigi sjálft að standa að byggingu og rekstri hins nýja fangelsis. Á sama tíma og sú stefna hefur verið mótuð, sem verið er að hrinda í framkvæmd hér á Kvíabryggju, að föngum sé treyst meira en áður með sérstökum samningi fyrir rekstri og starfsemi fangelsisins, er ekki óeðlilegt, að þeirri spurningu sé velt fyrir sér, hvort stofna eigi með samningi til samstarfs við einkaaðila um byggingu og jafnvel rekstur fangelsa." segir Björn í ávarpi sínu.

Björn ræddi í ávarpi sínu fjórþætta áætlun sem er í gangi hvað úrbætur í fangelsismálum hérlendis varðar:

"Í fyrsta lagi felst í áætluninni að fjölga rýmum hér á Kvíabryggju úr 14 í 22 og auka hlutdeild fanga í rekstri fangelsisins.

Í öðru lagi að endurnýja og bæta fangelsið á Akureyri en framkvæmdum þar lýkur um áramótin.

Í þriðja lagi að reisa aðkomu- og heimsóknarhús á Litla Hrauni og byggja deild með sex klefum fyrir konur og sérdeild fyrir fanga, sem búa við opnari aðstæður en nú er unnt á staðnum.

Í fjórða lagi verði reist nýtt fangelsi með 64 klefum á höfuðborgarsvæðinu, þar sem verði gæsluvarðhald, afplánun í skamman tíma, meðferðar- og sjúkradeild.

Áætlunin var samþykkt árið 2005 af þáverandi ríkisstjórn. Í tilefni þessa atburðar hér í dag ræddi ég framkvæmd hennar á fundi ríkisstjórnarinnar í gær og í lok þeirra umræðna staðfesti ríkisstjórnin, að áfram yrði unnið að uppbyggingu fangelsanna í landinu í samræmi við áætlunina. Hraði framkvæmda ræðst að sjálfsögðu af fjárveitingum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×