Framsóknarmenn gagnrýna Ingibjörgu 3. október 2007 13:26 MYND/HS
Framsóknarmenn gagnrýndu utanríkisráðherra harðlega á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í morgun. Telja þeir að ákvörðun ráðherra um að draga starfsmann friðargæslunnar í Írak til baka sendi röng skilaboð út í alþjóðasamfélagið. Eðlileg ákvörðun segir varaformaður nefndarinnar. „Þetta var ekki ígrunduð ákvörðun," sagði Siv Friðleifsdóttir, alþingismaður, í samtali við Vísi. „Friðargæsluliðinn var starfandi innan verkefnis sem studdist við ályktanir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Á sama tíma og við sækjumst eftir setu í ráðinu erum við að draga okkur úr verkefninu. Þetta sendir alröng skilaboð út í alþjóðasamfélagið." Siv bendir ennfremur á að friðargæsluliðinn hafi verið starfandi á vegum Nató samkvæmt beiðni frá Írökum. Því skjóti það ennfremur skökku við að á sama tíma og Íslendingar sækjast eftir loftvörnum frá bandalaginu erum við draga okkur út úr verkefnum á þess vegum. Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar og varaformaður utanríkismálanefndar, vísar gagnrýni framsóknarmanna á bug. „Það liggur núna fyrir stefnumörkun hvernig Ísland á að beita sér í friðargæsluverkefnum. Við ætlum okkur að sinna verkefnum á sviði borgaralegrar uppbyggingar. Þetta verkefni uppfyllti ekki þau skilyrði þar sem um var að ræða uppbyggingu í tengslum við herafla."
Mest lesið Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Erlent Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Innlent Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Erlent Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Innlent Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Innlent Tveir skjálftar yfir þrír að stærð Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Blóðbankinn á leið í Kringluna Innlent Minnsti þéttleiki makríls síðan 2010 Innlent Fleiri fréttir Minnsti þéttleiki makríls síðan 2010 Tveir skjálftar yfir þrír að stærð Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Blóðbankinn á leið í Kringluna Nokkuð um hávaðaútköll Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Sjá meira