Innlent

Ekki hægt að líða hundaárásir

Hundur af schafer kyni.
Hundur af schafer kyni.

Nágrannakona hundamannsins, sem átti árásarhundinn umtalaða á Akranesi, segir að hundurinn hafi ekki ógnað sér. Hundamaðurinn er búsettur á Vesturgötunni á Akranesi og hélt dýrið til þar. Nágrannakonan segir að hundurinn hafi hins vegar oft verið laus og hlaupið um að eigin vild.

Nágrannakonan vildi ekki koma fram undir nafni af ótta við að verða fyrir aðkasti. Hún segist þekkja til þeirra kvenna sem urðu fyrir árás hundsins. Hún segir að málið sé umtalað á Akranesi.  „Það er ekki hægt að líða það að hundar ráðist á fólk, “ segir hún.

Nágrannakonan telur að schafer hundar séu viðkvæm dýr og eigi ekki að ganga lausir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×