Innlent

Rætt um friðargæsluna á fundi utanríkismálanefndar

Utanríkismálanefnd Alþingis kom saman til fundar í morgun þar sem málefni íslensku friðargsælunnar voru meðal annars til umræðu að beiðni Sivjar Friðleifsdóttur, fulltrúa Framsóknarflokksins, í nefndinni.

Framsóknarmenn hafa lýst furðu sinni á ákvörðun Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra að kalla heim eina friðargæsluliða Íslands í Írak, sem hætti störfum í Bagdad um mánaðamótin og telja að með því hafi átt sér stað stefnubreyting í íslenskum utanríkismálum.

Utanríkisráðherra sat fyrir svörum nefndarmanna á fundinum, en hún kynnti jafnframt helstu áherslur sínar fyrir komandi þing í vetur. Fundinum var ekki lokið rétt fyrir fréttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×