Innlent

Umferðartafir eftir að tengivagn valt við Bifröst

Umferð um Norðurárdal stöðvaðist um tíma í morgun eftir að tengivagn losnaði aftan úr flutningabíl og valt á hliðina skammt frá Bifröst.

Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi brotnaði svokallaður stóll á vörubílnum en hann er notaður til að tengja vörubílinn við vagninn. Vagninn var að flytja steypueiningar og lagðist hann á hliðina þvert á veginn. Því stöðvaðist umferð í nokkurn tíma. Nú er hins vegar búið að koma einingunum og vagninum af veginum.

Engan sakaði í óhappinu en verið er að rannsaka hvers vegna stóllinn á vörubílnum brotnaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×