Hörð gagnrýni á Ríkiskaup vegna sölu NATO-eigna 3. október 2007 10:30
Einar Örn Thorlacius sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar hefur sent Ríkiskaupum bréf vegna fyrirhugaðrar sölu ríkisins á fyrrum eignum NATO í Hvalfirði. Í bréfinu koma m.a. fram alvarlegar athugsemdir við framkvæmd sölunnar þar sem þessar eignir séu ekki til í fasteignamatinu og að svæðið sé ekki til á neinu skipulagi. "Við teljum þennan framgangsmáta með öllu óviðundandi sem og að fjármálaráðuneytið hafði ekkert samráð við okkur um þessa sölu áður en hún var ákveðin," segir Einar Örn í samtali við Vísi. Málið var rætt á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar síðdegis í gær. Samkvæmt því sem fram kom á fundinum hafa Hvalfjarðarsveit og Faxaflóahafnir ákveðið að bjóða sameiginlega í eigurnar. Sat Gísli Gíslason hafnarstjóri fundinn en Hvalfjarðarsveit á 10% í Faxaflóahöfnum og hefur mann í stjórn þeirra. Olíudreifing ehf. hefur einnig áhuga á að bjóða í eigurnar og var erindi frá fyrirtækinu tekið til umræðu á fyrrgreindum fundi. "Olíudreifing, sem og allir aðrir sem ætla að bjóða í verkið búa við sama vanda sem er að ekkert skipulag um notkun þess er til staðar," segir Einar Örn. "Þeir sem kaupa eignirnar verða að bíða eftir ákvörðun sveitarfélagsins um hvernig svæðið verður skipulagt og undir hvaða not það fer. Þess vegna gagnrýnum við harðlega framgangsmáta málsins af hálfu fjármálaráðuneytisins."
Mest lesið Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Innlent Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Innlent Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Innlent Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Erlent Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Innlent Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Innlent „Markmið mitt var bara að ná byssunni af honum“ Erlent Milljón dalir eða meira fyrir náðun Erlent Gestir á Edition stukku út á náttfötunum Innlent Hér verða áramótabrennur á Gamlársdag 2025 Innlent Fleiri fréttir Fimm með vanlíðan komast í Skjólshús í tvær vikur Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Kominn tími á gos og Veðurstofan öllu viðbúin Sýknuð af ólöglegum innflutningi lyfja vegna rangra upplýsinga Lyfjastofnunar Þriggja hatta Inga segir engin ráðherraskipti í pípunum Desember að komast á lista yfir þá allra hlýjustu Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Samið um Skjólshús og gos gæti komið á hverri stundu Hér verða áramótabrennur á Gamlársdag 2025 Björn Ingi leiðir ekki Miðflokksmenn í borginni Gestir á Edition stukku út á náttfötunum Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Óvenju mikið að gera hjá slökkviliðinu Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Þrír réðust á einn og höfðu af honum farsíma Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri „Rúllandi rafmagnsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Sjá meira