Innlent

Nefnd geri tillögur að samstarfi við Færeyinga í heilbrigðismálum

Heilbrigðisráðherra vill koma á sameiginlegum heilbrigðisþjónustumarkaði með Færeyingum.
Heilbrigðisráðherra vill koma á sameiginlegum heilbrigðisþjónustumarkaði með Færeyingum. MYND/Anton

Heilbrigðisráðherrar Íslands og Færeyja, þeir Guðlaugur Þór Þórðarson og Hans Pauli Ström, hafa skipað nefnd sem á að semja tillögur um samstarf þjóðannna í lyfja- og heilbrigðismálum.

Markmiðið er að koma á sameiginlegum heilbrigðisþjónustumarkaði eftir því sem segir í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu og á nefndin að draga fram þau heilbrigðissvið sem falla vel að samstarfinu. Jafnframt þá þætti sem stuðla að viðskiptum með lyf, hjúkrunar- og lækningavörur í anda fríverslunarsamnings milli Íslands og Færeyja. Tveir fulltrúar frá hvorri þjóð eru í nefndinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×