Innlent

Á leikskóla í 40 ár

Haukur Holm skrifar

Það er gefandi að vinna á leikskóla með börnum segir Þóra María Stefánsdóttir sem í dag hélt upp á fjörutíu ára starfsafmæli sitt á leikskólanum Laugaborg.

Það eru algengari fréttir að fólk fáist ekki til starfa í leikskólum, heldur en að fólk hafi unnið þar áratugum saman. Í dag var mikil hátíð í leikskólanum Laugaborg í tilefni þess að einn starfsmaðurinn, Þóra María Stefánsdóttir átti 40 ára starfsafmæli í dag. Fáni var dreginn að húni í tilefni dagsins, gjafir gefnar og börnin sungu. Þóra María segir sig ekki hafa órað fyrir því þegar hún byrjaði 2. október 1967 að hún yrði á sama stað 2. október 2007. En hún er þar enn vegna þess að vinnan er skemmtileg og gefandi. Það sé gaman að vinna með börnunum og hún er ekkert á því að hætta. Helga Alexandersdóttir leikskólastjóri segir starfsmannaskipti tiltölulega fátíð á skólanum, en það sé fáheyrt að fólk nái 40 ára starfsaldri. Hún segist ekki fyrir nokkurn mun vilja missa Þóru María frá leikskólanum.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×