Eftirlitsátaki vegna erlendra starfsmanna hleypt af stokkunum 2. október 2007 16:10 MYND/Einar Ben Thorsteinsson
Vinnumálastofnun hleypir í dag af stokkunum sérstöku eftirlitsátaki með fyrirtækjum vegna erlendra starfsmanna. Átakið ber nafnið Allt í ljós og er unnið í samstarfi við Félagsmálaráðuneytið og ASÍ. Átakið mun standa yfir um allt land en með sérstaka áherslu á fyrirtæki í byggingariðnaði á höfuðborgarsvæðinu eftir því sem segir í tilkynningu frá Vinnumálastofnun. Þar segir enn fremur að að stofnunin hafi í gær sent 1600 fyrirtækjum bréf og vakið athygli á átakinu. Markmið átaksins er þríþætt. Að starfsemi erlendra fyrirtækja sem hér starfa sé í samræmi við íslensk lög og kjarasamninga og að innlendir atvinnurekendur tilkynni ráðningar starfsmanna sem eru ríkisborgarar í átta af hinum tíu nýju EES-ríkjum. Enn fremur að tryggja að vinnuveitendur virði réttindi erlends launafólks og að lokum að gefa þau skilaboð að ekki sé annað liðið en að fyrirtæki, innlend sem erlend virði íslensk lög. Sex menn í fullu starfi við eftirlit Átaki Vinnumálastofnunar stendur í tvo mánuði og munu sex starfsmenn Vinnumálastofnunar sinna því í fullu starfi, fjórir á höfuðborgarsvæðinu, einn á Selfossi og annar á Egilsstöðum. Auk þess munu tveir starfsmenn til viðbótar hafa það að hlutastarfi að aðstoða við eftirlitsþáttinn á höfðuborgarsvæðinu. Eftirlitinu verður þannig að fyrirtæki verða heimsótt og óskað eftir nafnalistum yfir útlendinga sem þar starfa. Komi eitthvað athugavert í ljós eða skráningu er ábótavant er fyrirtækjunum veittur tíu daga frestur til að lagfæra skráningu og afhenda ráðningarsamninga og eftir atvikum þjónustusamninga aðila. Trúnaðarmenn stéttarfélaga á vinnustöðum eða stéttarfélög hafa heimildir til að biðja um afrit af launaseðlum eða öðrum gögnum er staðfesti launagreiðslur og önnur starfskjör hlutaðeigandi starfsmanna. Verði fyrirtækið ekki við kröfunni getur Vinnumálastofnun óskað eftir upplýsingum sem stofnunin telur nauðsynleg. Dagsektir og vinnustöðvun Fái Vinnumálastofnun upplýsingar sem gefa til kynna að brotið sé gegn íslenskum lögum og reglum mun stofnunin afhenda hlutaðeigandi eftirlitsstjórnvaldi, einkum lögreglu, skattyfirvöldum, Útlendingastofnun og Vinnueftirliti ríkisins eftir atvikum upplýsingarnar. Verði fyrirtæki hins vegar ekki við beiðni Vinnumálastofnunar um að skrá erlenda starfsmenn eða veita umbeðin gögn mun stofnunin beita þvingunaraðgerðum eins og dagsektum eða tímabundinni stöðvun á starfsemi.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira