Innlent

Söfnun til stuðnings Geðhjálp, BUGL og Forma

MYND/Stefán
Kiwanis-hreyfingin á Íslandi efnir til fjögurra daga landssöfnunar í vikunni til stuðnings geðsjúkum og aðstandendum þeirra. Söfnunin hefst á fimmtudag og stendur til og með sunnudeginum 7. október og verður kjörorð hennar Lykill að lífi. Sparisjóðirnir á Íslandi, Toyota, Olís og Bónus eru bakhjarlar verkefnisins eftir því sem segir í tilkynningu frá Kiwanishreyfingunni.

Söfnunin er haldin í tengslum við alþjóðlega geðheilbrigðisdaginn 10. október og rennur ágóðinn til Geðhjálpar, BUGL og Forma. Gengið verður í hús um land allt, sölumenn verða við verslunarmiðstöðvar og aðra fjölfarna staði auk þess sem leitað er til fyrirtækja um stuðning.

Sparisjóðirnir á Íslandi eru fjárvörsluaðili söfnunarinnar og má leggja málefninu lið með því að fara inn á heimabanka sparisjóðanna og millifæra. Hægt er að leggja inn á reikning söfnunarinnar; 1100-26-55000, kennitala 640173-0179. K-lykillinn verður ennfremur til sölu í öllum verslunum Bónuss og á þjónustustöðvum Olís dagana 4.-7. október.

Kiwanis-hreyfingin á Íslandi hefur í yfir 30 ár ár staðið fyrir landssöfnun þriðja hvert ár með sölu á K-lyklinum. Ágóði af landssöfnununum hefur runnið til fjölda verkefna til hjálpar geðsjúkum. Að þessu sinni er sjónum sérstaklega beint að ungu fólki sem glímir við geðræn vandamál.

Geðhjálp mun við ráðstöfun síns hluta söfnunarfjárins beina sjónum sérstaklega að ungu fólki á aldrinum 12-25 ára sem á við geðraskanir að etja. Þá hyggst BUGL nýta sinn hluta söfnunarfjárins til verkefna sem gera legudeildarsjúklingum kleift að fá þjálfun og afþreyingu utan deildarinnar.

Forma mun enn fremur nýta styrkinn til að efla ráðgjafastarfsemi sína um land allt svo átröskunarsjúklingar eigi auðveldara með að leita sér hjálpar. Einnig verður komið á fót skipulegri forvarnafræðslu í 8. bekk grunnskóla og 1. bekk framhaldsskóla til að sporna við fjölgun átröskunarsjúklinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×