Innlent

Slasaðist á krosshjóli

Maðurinn var fluttur til skoðunar. Mynd úr safni.
Maðurinn var fluttur til skoðunar. Mynd úr safni. Mynd/ E.ÓL.
Um miðjan dag síðastliðinn laugardag var lögreglu í Vestmannaeyjum tilkynnt um slys á svokallaðri „Krossbraut" á Nýjahrauni, en þarna hafði maður sem var á mótorkrosshjóli fallið af hjólinu og meiðst á baki. Ökumaðurinn var fluttur til Reykjavíkur með sjúkraflugvél til skoðunar. Ekki er vitað hversu alvarleg meiðsl hans eru.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×