Innlent

Braust inn í hesthús og stal járningavörum

Maðurinn braust inn í hesthús. Mynd úr safni.
Maðurinn braust inn í hesthús. Mynd úr safni.

Þjófur braust inn í þrjú hesthús á Blönduósi um helgina og stal þaðan margvíslegum búnaði til að járna hesta. Hann lét hinsvegar önnur og meiri verðmæti eiga sig, eins og hnakka, yfirhafnir og vínföng. Á vefnum Húna segir að þjófurinn sé greinilega bindindis- og handverksmaður. Þessa sömu helgi fyrir þremur árum var líka brotist inn í hesthús á Blönduósi og þaðan stolið áhöldum til járninga.-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×