Framlög til Landspítala aukast um tæpar 900 milljónir 1. október 2007 16:49 Landspítalinn í Fossvogi.
Gert er ráð fyrir að rekstur Landspítala muni kosta rétt rúma 33 milljarða króna á næsta ári og jafngildir það um 883 milljóna króna hækkun að raungildi frá fjárlögum ársins 2007. Landspítalinn er stærsti einstaki útgjaldaliðurinn í fjárlagafrumvarpinu. Farið er fram á 820 milljóna króna framlag til að styrkja núverandi starfsemi Landspítala og þar með talið að mæta auknum útgjöldum vegna lyfja og aukinnar starfsemi. Enn fremur er lagt til 245 milljóna króna framlag til að stytta bið eftir greiningu og meðferð á barna- og unglingageðdeild spítalans og jafnframt óskað eftir 5 milljónum króna til að ráða þar fræðslustjóra til að efla ráðgjafahlutverk deildarinnar. Í fjáraukalagafrumvarpi 2007 er samtals gert ráð fyrir 30 milljónum króna til þessara tveggja verkefna. Þá er lagt til að 16,7 milljóna króna útgjöld færist til spítalans af öðrum liðum. Er þar í fyrsta lagi um að ræða 10,7 milljónir frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Á móti koma tvær tillögur um að samtals 143 milljónir færist frá spítalanum og er í fyrra tilviki um að ræða 98 milljónir króna sem flytjast til félagsmálaráðuneytis vegna reksturs sambýla fyrir geðfatlaða sem áður voru hluti af geðsviði. Í síðari tillögunni er lagt til tæpar 53 milljónir flytjist til sjúkratrygginga sem jafnframt taki yfir framkvæmd samnings um tæknifrjóvganir. Anna Lilja Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjárreiðna og upplýsinga, hafði ekki kynnt sér fjárlagafrumvarpið þegar Vísir hafði samband við hana og gat því ekki látið í ljós skoðun sína á því.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira