Málefni yngstu og elstu kynslóðanna forgangsmál næstu ára 1. október 2007 16:43
Málefni elstu og yngstu kynslóðanna verða forgangsmál næstu ára samkvæmt langtímaáætlun í ríkisfjármálum sem kynnt er samhliða fjárlagafrumvarpi næsta árs. Fram kemur í frumvarpinu að auk þess muni ríkisstjórnin halda áfram uppbyggingu í samgöngumálum og heilbrigðis- og félagsmálum. Bent er á að samkvæmt fjárreiðulögum beri ríkisstjórninni að leggja fram samhliða fjárlagafrumvarpi langtímaáætlun í ríkisfjármálum sem nái til þriggja næstu ára þar á eftir. Því leggur ríkisstjórnin nú fram langtímaáætlun fyrir árin 2008-2011. Hyggst ríkisstjórnin forgangsraða verkefnum næstu fjögurra ára og er ætlunin að leggja fram endurskoðaða stefnumörkun á vorþingi þar sem vinna við forgangsröðun er ekki búin. Auk þess að setja elstu og yngstu kynslóðirnar í forgang er ætlunin að einfalda almannatryggingakerfið og fjárfesta meira í menntun og rannsóknum. Þá verður stóraukin áhersla á forvarnir í heilbrigðismálum. Enn fremur er stefnt að frekari skattalækunum á einstaklinga á kjörtímabilinu með það fyrir augum að bæta hag lágtekju - og millitekjufólks. Þær lækkanir verði hins vegar tímasettar í ljósi meginmarkmiða ríkisstjórnarinnar í hagstjórn. Í langtímaáætlun sem fylgir fjárlagafrumvarpinu er enn fremur gert ráð fyrir að hagvöxtur á næsta ári verði aðeins 1,2 prósent en að hann vaxi svo á árunum 2009-2011. Enn fremur segir að tekjuafkoma ríkissjóðs versni eilítið árið 2009 og verði jákvæð um ellefu milljarða króna. Hins vegar muni ríkissjóður skila 27 milljarða króna afgangi árið 2010 og 35 milljörðum árið 2008.
Mest lesið Alelda bíll á Emstruleið Innlent Skotárás á Times Square Erlent Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Erlent Gefur ekkert landsvæði eftir Erlent Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Innlent Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Innlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Fleiri fréttir Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Esjan snjólaus og það óvenju snemma Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Lögreglurannsókn á banaslysi í Brúará „svo til“ lokið Sjá meira