Sturla vill breyta ýmsu í störfum þingsins 1. október 2007 15:41 Sturla Böðvarsson MYND/Teitur
Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, hélt ávarp á þingsetningarfundi í dag. Hann hóf mál sitt á því að bjóða alþingismenn og aðra gesti velkomna til athafnarinnar en gestir voru mun fjölmennari nú en áður, þar á meðal var mökum þingmanna boðið að vera við athöfnina. Í ávarpinu vék hann að starfstíma þingsins og ýmsum öðrum breytingum sem hann telur vert að gera á störfum þingmanna og starfsháttum þingsins. Í ávarpi Sturlu kom fram að hann hefði í sumar unnið að því að bæta ýmislegt í aðstöðu þingmanna og starfsháttum þingsins. Hann hefur mótað tillögur í þeim efnum með stuðningi forsætisnefndar. „Ég hef rætt við formenn stjórnmálaflokkanna og formenn þingflokkanna og kynnt þeim hugmyndir mínar um bætta starfshætti þingsins," sagði Sturla. Sturla sagði að almennur stuðningur virðist vera meðal þingmanna fyrir því að starfstími Alþingis verði lengdur. „Með breytingu á starfstímanum er ekki stefnt að því að fjölga þingfundum heldur að þingstörf dreifist betur yfir lengri tíma til hagsbóta fyrir þingmenn og allt skipulag þingsins. Þannig gætu þingfundadagar verið jafnmargir og nú er en nefndadögum yrði fjölgað. Það mætti hugsa sér að taka viku og viku í þingnefndastörf einvörðungu, en slíkt gæti stuðlað að góðri samfellu í störfum nefnda við tímafrek mál." Annað meginatriði í hugmyndum Sturlu er nýr rammi við umræður um þingmál á Alþingi. „Hér hef ég í huga að gera umræður markvissari og snarpari en nú er, en draga úr löngum ræðum og fá þannig betur fram mismunandi sjónarmið þingflokka og þingmanna til mála," sagði forseti. Sturla sagði einnig að næturfundir ættu ekki að þekkjast á Alþingi og sagði hann að þingmenn og starfsfólk Alþingis ættu eins og annað fólk að geta sinnt eðlilegu fjölskyldulífi, eins og hann orðaði það. Sturla vék einnig að því að auðvelda ætti þingmönnum að efna til almennra umræðna um aðkallandi mál með skömmum fyrirvara. „Ég tel að slík almenn pólitísk umræða geti farið fram í upphafi hvers þingfundar og þar eigi jafnframt að vera möguleiki til þess fyrir þingmenn að eiga orðastað við fleiri en ráðherra, t.d. formenn nefnda og formenn þingflokka." Síðasta atriðið sem Sturla nefndi og snéri að störfum Alþingis var sú brýna nauðsyn á að efla nefndarstarf þingsins. „Svigrúm nefnda til fundarstarfa er oft mjög þröngt. Það er þess vegna nauðsynlegt að gefa nefndum rýmri tíma í störfum Alþingis. Þá tel ég að efla beri hlutverk nefnda í eftirlitshlutverki þingsins. Sem lið í því væri eðlilegt að ráða sérstaka starfsmenn á skrifstofu þingsins sem einkum mundu vinna fyrir minnihluta í nefndum. Jafnframt tel ég að til greina komi að opna einstaka nefndarfundi fyrir fjölmiðlum," sagði Sturla að lokum.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira