Fleiri fá að skila inn tillögum um nýjar höfuðstöðvar Landsbankans 1. október 2007 12:52 Mikill áhugi er hjá innlendum sem erlendum arkitektum að koma að hönnun nýrra höfuðstöðva Landsbankans. MYND/Daníel Rúnarsson
Landsbankinn hefur ákveðið að fjölga þeim arkitektateymum sem taka munu þátt í samkeppni um hönnun og framkvæmd nýrra höfðustöðva bankans í miðbænum. Fram kemur í tilkynningu frá bankanum að upphaflega hafi staðið til að fá 12 arkitektateymi til þátttöku í fyrra þrepi samkeppninnar og bárust umsóknir frá 48 arkitektateymum frá 17 þjóðlöndum. Í ljósi þess hve mikill fjöldi umsækjenda uppfyllti öll skilyrði til þátttöku var ákveðið að fjölga þátttakendum í 21 og eru þeir frá níu þjóðlöndum. Af þeim eru 13 teymi með íslenska arkitekta eða arkitektstofur innanborðs, þar af sex alíslensk teymi. Í fyrra þrepi samkeppninar er gert ráð fyrir að þátttakendur setji fram hugmyndir að heildarskipulagi byggingarreits, tengingum við umhverfið og heildaryfirbragði bygginga. Tillögum á að skila fyrir nóvemberlok. Sjö manna dómnefnd skipuð fulltrúum Landsbankans og Arkitektafélags Íslands velur svo fimm tillögur til þátttöku í síðara þrepi þar sem teymin vinna útfærslu og nánari tillögu að byggingum út frá þarfagreiningu Landsbankans. Miðað er við að það þrep hefjist fyrir miðjan desember og ljúki fyrir miðjan febrúar á næsta ári. Veglegt verðlaunafé verður veitt fyrir fyrsta og annað sæti og aðrir keppendur fá greidda ákveðna upphæð fyrir þátttöku.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Sjá meira