Innlent

140 börn á biðlista eftir talþjálfun hjá Talþjálfun Reykjavíkur

Talþjálfun Reykjavíkur hefur sagt upp samningi við Tryggingastofnun. Forsvarsmenn fyrirtækisins harma að trúnaðarbrestur hafi orðið milli þeirra og stofnunarinnar. Um hundrað og fjörutíu börn á öllum aldri eru á biðlista eftir að komast í talþjálfun hjá Talþjálfun Reykjavíkur.



Biðlistar hjá Talþjálfun Reykjavíkur hafa aldrei verið lengri. Nú eru um 140 börn sem bíða eftir talþjálfun og getur biðtíminn verið allt að eitt og hálft ár. Þangað sækja börn og fullorðnir með ýmis konar mál- og talörðugleika. Talmeinafræðingar hjá Talþjálfun Reykjavíkur segja skýringarnar margvíslegar telja þó fyrst og fremst vera skort á talmeinafræðingum í stéttinni.



Birgitta Úlfarsdóttir er fjögurra ára og byrjaði í talþjálfun fyrir einu ári. Hún er greind á einhverfurófi og var ekki byrjuð að tala um tveggja ára aldur. Rut segir að Birgitta hafi verið á biðlista hjá Talþjálfun Reykjavíkur í rúmt ár. Erfitt hafi verið að bíða þetta ár þar sem þau álitu að best væri að grípa inn í strax við átján mánaða aldur.



Í dag hefur orðaforði Birgittu aukist verulega með talþjálfun tvisvar í viku og Rut segir miklar breytingar á talþroska hennar.



Nýlega sögðu eigendur Talþjálfunar Reykjavíkur upp samningi við Tryggingastofnun. Stofnunin tekur þá ekki þátt í kostnaði þeirra sem eru talþjálfun hjá fyrirtækinu. Áður greiddi hún 80% kostnaðar. Eigendur talþjálfunar segja að um trúnaðarbrest hafi verið að ræða og ekki hafi náðst sátt um fyrirkomulag. Samningsslitin bitni mest á þeim sem síst megi við því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×