Innlent

Ásatrúarmenn blótuðu undir Hafnarfjalli

Frá blótinu í Hafnarskógi í gærkvöldi.
Frá blótinu í Hafnarskógi í gærkvöldi. MYND/Gísli Páll Guðjónsson

Vættarblót ásatrúarfélags Íslands var haldið í Hafnarskógi undir Hafnarfjalli í gærkvöldi. Ásatrúarfélagið heldur nokkur blót yfir árið. Á þeim er drukkið við varðeld til heilla guðum og góðum vættum. Drykkjarhorn með mjöði er látið ganga milli manna sem standa við eldinn.

Blótað er á sumar- og vetrarsólstöðum en blótið í gær var árlegt haustblót. Næst verður blótað á vetrarsólstöðum í desember. Nánari upplýsingar má finna á vef ásatrúarfélagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×