Innlent

Réðist á lögreglumann í Reykjanesbæ

Lögreglumaður í Reykjanesbæ hlaut talsverða áverka í nótt þegar maður réðist á hann á Hafnargötu og kýldi í andlitið. Lögreglumenn voru að leysa upp slagsmál þegar maðurinn réðist á einn þeirra. Árásarmaðurinn er á tvítugsaldri og var undir áhrifum áfengis. Hann var handtekinn og gistir fangageymslur en verður yfirheyrður seinna í dag.

Mikill erill var hjá lögreglunni á Suðurnesjum í nótt og voru fangageymslur fullar vegna slagsmála og óláta. Þá keyrði ölvaður ökumaður á og var færður á lögreglustöðina þar sem tekið var úr honum blóðsýni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×