Innlent

Fræðsla um réttindi samkynhneigðra á Íslandi

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra og Frosti Jónsson formaður Samtakanna 78 undirrituðu í dag samning um að koma að gerð fræðslubæklings um réttindi samkynhneigðra á Íslandi fyrir útlendinga sem eru búsettir hér á landi. Félagsmálaráðuneytið og Samtökin veita tæpum tveimur milljónum króna til verkefnisins. Alþjóðahúsið kemur einnig að gerð bæklingsins og verður hann þýddur á fjögur tungumál; pólsku, ensku, litháísku og tælensku. Formaður Samtakanna 78 segir að ekki hafi náðst nógu vel til samkynhneigðra útlendinga sem búi á Íslandi og bæta þurfi úr því. Nú búa um 20 þúsund útlendingar á Íslandi og má ætla að eitt til tvö þúsund þeirra séu samkynhneigðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×