Innlent

Launafólki tryggð réttindi við uppsögn

Alþýðusamband Norðurlands skorar á Alþingi.
Alþýðusamband Norðurlands skorar á Alþingi. MYND/GVA

Alþýðusamband Norðurlands skorar á Alþingi að fullgilda svo kallaða ILO-samþykkt nr. 158 sem tryggir launafólki lágmarks mannréttindi við uppsagnir úr starfi. Slíkt ákvæði vanti í íslenska löggjöf. Þetta kom fram á 30. þingi sambandsins í dag.

Komi ekki til þess að Alþingi fullgildi samþykktina á þinginu í haust telur sambandið mikilvægt að sambærilegt ákvæði komi inn í kröfugerð verkalýðshreyfingarinnar vegna komandi kjarasamninga. Þeir eru almmennt lausir um næstu áramót.

Á þingi sambandsins voru einnig samþykktar ályktanir um kjaramál og velferðarmál, en þar segir meðal annars að vinna þurfi gegn mismunun gagnvart erlendu launafólki og félagslegum undirboðum á vinnumarkaði. Slík mismunun og undirboð vegi að þeim réttindum sem byggð hafi verið upp á vinnumarkaði á löngum tíma.

Eyða þurfi kynbundnum launamun og tryggja sömu laun fyrir sömu vinnu hvar sem er á landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×