Innlent

Hrafn vill ólétta hafmeyju

Hrafn Gunnlaugsson frumsýnir endurgerð Hvíta víkingsins, Emblu, eftir viku.
Hrafn Gunnlaugsson frumsýnir endurgerð Hvíta víkingsins, Emblu, eftir viku.

Hrafn Gunnlaugsson vill byggja risastóra kasólétta hafmeyju sitjandi á steini í Laugarnesinu. Í viðtali í Blaðinu í dag segist hann vilja hafa hana jafnstóra og risablokk, svo hún rími vel við friðarsúlu Yoko Ono. Annars væri ekkert gaman að henni.

Hrafn segir hugmyndina hafa kviknað þegar hann sat með Oddi Nerdrum eitt kvöldið og horfði út á skerið. Ólétta hafmeyjan ætti að vera svar íslands við Litlu hafmeyjunni í Kaupmannahöfn.

„Mig dreymir um að sjá þessa stóru hafmeyju sitjandi á steini. Þegar brimar á sjórinn að fara inn í hana og spýtast út úr augum hennar," segir Hrafn í viðtalinu.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×