Innlent

Umfangsmikið vísindaverkefni á Íslandi

Umfangsmikið vísindaverkefni sem miðar að bindingu koltvísýrings sem steintegundar í iðrum jarðar verður undirritað við Hellisheiðarvirkjun í dag. Það eru fulltrúar vísindasamfélags og atvinnulífs á Íslandi, Bandaríkjunum og Frakklandi sem innsigla samkomulagið nú á eftir.

Þær stofnanir sem standa að verkefninu eru Orkuveita Reykjavíkur, Háskóli Íslands, Columbia háskóli í Bandaríkjunum og Rannsóknarráð Frakklands. Verkefnið snýst um tilraun til að binda koltvísýring sem kalsít í basaltjarðlögum en kalsít er ein helsta steintegundin í jörðinni á jarðhitasvæðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×