Innlent

Bílaeigendur geta reiknað orkueyðslu bíla sinna

Orkusetur gefur fólki kost á að reikna út eyðslu og útblástur bifreiða með því að nota sérstaka reiknivél á vefsíðu stofnunarinnar. Notendur hennar geta valið bílaframleiðanda, tegund og undirtegund og vélin skilar niðurstöðu um útblástur og eyðslu. Visthæfir bílar fá sérstakt tákn.

Sigurður Ingi Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs, segir að forsendurnar sem notaðar eru séu fengnar frá dönsku Umferðarstofunni sem notar orkueyðslu bifreiða sem grunn fyrir skattlagningu á bíla.

Ökumenn geta reiknað út hvað þeirra eigin bílar eyða miklu og fá einkunn eftir því. „Það myndi breyta mjög miklu ef margir bílaeigendur stefndu á hærri einkunnargjöf," segir Sigurður Ingi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×