Innlent

Þota seint á ferð á Reykjavíkurflugvelli

MYND/Valgarður

Það fór ekki framhjá íbúum í nágrenni við Reykjavíkurflugvöll þegar Boeing 757 þota lenti þar í gærkvöldi þegar klukkan var að ganga eitt. Þarna mun hafa verið um að ræða vél á vegum Flugfélags Íslands en fyrirtækið leigði vél frá Icelandair til þess að vinna upp biðlista sem myndast höfðu í innanlandsfluginu. Vélin fór því með farþega frá Akureyri til Reykjavíkur.

Vegna veðurs var nær ekkert flogið frá Reykjavíkurflugvelli í gærdag. Vélin þurfti síðan að fara til Keflavíkur til þess að geta flogið þaðan í morgun og því fékk hún leyfi til þess að hefja sig til flugs á vellinum eftir lokun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×