Innlent

Bátur sprakk á Árskógsströnd

Betur fór en á horfðist þegar bátur sprakk.
Betur fór en á horfðist þegar bátur sprakk.
Trefjaplastbátur, svokallaður Sómabátur,  sprakk á bílaverkstæði á Árskógsströnd við Eyjaförð í morgun. Að sögn lögreglunnar á staðnum var verið að logsjóða á þilfari bátsins sem var inni á verkstæðinu.

Talið er að bensíngufur hafi lekið út í loftið með þeim afleiðingum að ógnarsprenging varð og þilfarið þeyttist af bátnum og brotnaði í þrennt. Hluti úr bátnum þeyttist upp í loft hússins og er það talsvert skemmt.

Einn maður var staddur uppi á þilfari bátsins og þeyttist hann af bátnum við sprenginguna en slasaðist lítiið. Þrír aðrir voru staddir inni á verkstæðinu þegar slysið varð, en þá sakaði ekki að sögn lögreglu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×