Þegar hafist handa við hagræðingu hjá MS 28. september 2007 13:30 Forstjóri MS segir góða samstöðu um hagræðingaraðgerðir meðal félagsmanna. MYND/GVA
Guðbrandur Sigurðsson, forstjóri MS, segir að þegar verði hafist handa við hagræðingaraðgerðir sem fjallað var um á fulltrúafundi Auðhumlu, móðurfélags MS, í gær. Hann býst við að til einhverra uppsagna komi. Eins og greint hefur verið frá er ætlunin að spara um 200 milljónir króna vegna slakrar afkomu félagsins á fyrri helmingi ársins en þá tapaði MS um 180 milljónum króna. Guðbrandur segir í samtali við Vísi að ýmsar skýringar séu á þessu tapi en meðal annars var ákveðið að lýsa yfir verðstöðvun á mjólk út þetta ár til þess að vinna gegn hærra matarverði. Guðbrandur bendir á að mjólkurverð hafi hækkað um 2,5 prósent á síðustu 4-5 árum á sama tíma og vísitala hafi hækkað um 17 prósent. „Með hagræðingunni viljum við gera enn betur en við höfum gert. Markmiðið er að nýta enn betur þau tækifæri sem eru til hagræðingar og þetta er í samræmi við stefnu sem við mörkuðum þegar Mjólkursamsalan tók til starfa í byrjun árs. Þetta gerum við til þess að reyna að bæta hag bæði félagsmanna okka og neytenda," segir Guðbrandur en MS er rekstrarfélagí eigu rúmlega 700 kúabænda. Hagræðing á tveimur til tveimur á hálfu ári Aðspurður segir Guðbrandur að góð samstaða hafi verið um aðgerðirnar og farið verið í þær eftir hendinni. Þær hefjist í raun strax en forsvarsmenn félagsins reikni með að ná þeim öllum fram á tveimur til tveimur og hálfu ári. Meðal þess sem grípa á til í sparnaðarskyni er að hætta að pakka mjólk og smjör á Austurlandi en sú pökkun verður flutt á Akureyri. Hins vegar verður mozzarella-ostur áfram framleiddur á Egilsstöðum. Aðspurður segir Guðbrandur að það komi til einhverra uppsagna vegna þessa á Austurlandi en ekkert liggi fyrir um umfang þeirra. Nokkrir hafa áhuga á lóð Osta- og smjörsölunnar MS stefnir einnig að því að flytja bita- og sneiðapökkun á osti úr húsnæði Osta- og smjörsölunnar í hús MS við Bitruháls og selja lóð og hús Osta- og smjörsölunnar. Sú lóð hefur verið sögð mjög verðmæt en að sögn Guðbrandar er hún 33 þúsund fermetrar að stærð. Hann segir nokkra aðila hafa lýst yfir áhuga á lóðinni en ekki liggi fyrir hvenær hún verði seld. Þá segir hann aðspurður að lóðin hafi verið verðmetin en vill ekki gefa upp hvert verðmatið er.
Mest lesið Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Innlent Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Innlent Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Innlent Tryggingar lækki verulega verði ráðist í nauðsynlegar úrbætur Innlent Skipti um akrein í tæka tíð þegar bíll ók á móti umferð Innlent Verkalýðsleiðtogar hjóla í Viðskiptaráð Innlent Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Innlent Handtekinn fyrir að bakka ítrekað á hús Innlent Gagnrýnir að ekki séu settar strangari kröfur á verktaka Innlent Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Erlent Fleiri fréttir Heitur matur í boði á ný Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Sinueldur barst í heyrúllur í Hvalfirði Framboðslistinn tilbúinn í Fjarðabyggð Tryggingar lækki verulega verði ráðist í nauðsynlegar úrbætur Átta konur eru í slökkviliðum í Árnessýslu Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Lögreglan lokaði fyrir umferð í Hlíðarfjall Fjölgaði í flokknum vikurnar fyrir forvalið Skipti um akrein í tæka tíð þegar bíll ók á móti umferð Kjósa um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps Gagnrýnir að ekki séu settar strangari kröfur á verktaka Handtekinn fyrir að bakka ítrekað á hús Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Verkalýðsleiðtogar hjóla í Viðskiptaráð Einn leikskóli inn, annar út og starfsemin á flakki milli húsa „Ég held ég hafi migið í saltan sjó“ Skellur fyrir Trump „Helvítið“ breyttist í geggjaðan Austurríkisfíling Gaf spellvirkjunum bakkelsi eftir að lit var skvett á heimilið Setið um fjölskyldur félagsráðgjafa og börn þeirra áreitt Dæmd fyrir að slasa farþega þegar hún sofnaði undir stýri rútu Leita vitna að atviki í Bolungarvíkurgöngum Rannsaka tilefnislausa líkamsárás í miðbænum Loka sundlaugum vegna loðnuvertíðar Ballið byrjað í Bláfjöllum Sigríður Björk og Jón Karl til Bessastaða Segist hafa rætt tvisvar við prinsinn í gini ljónsins Milljónir farið í sáttagreiðslur í Hafnarfirði Sjá meira