Innlent

„Læt ekki taka mig af lífi án dóms og laga“

Atli ætlar ekki að una því að vera settur í veiðibann.
Atli ætlar ekki að una því að vera settur í veiðibann. MYND/Róbert

Atli Gíslason, alþingismaður og lögmaður, ætlar ekki að una úrskurði Stangaveiðifélags Reykjavíkur sem nýverið dæmdi hann og veiðifélaga hans í þriggja ára veiðibann. Eftirlitsmaður í Hítará stóð nokkra þeirra að því að veiða á maðk í ánni og voru þeir í kjölfarið allir dæmdir í bann. Atli hyggst leita réttar síns í málinu og sættir sig ekki við að vera dæmdur fyrir verknað sem hann kom ekki nálægt og vissi ekki um.

„Ég er fluguveiðimaður og á bara flugustöng," segir Atli í samtali við Vísi. „Ég fór með flugustöng í ánna og ætli ég hafi ekki verið búinn að veiða í um það bil tíu mínútur þegar ég hætti því þar sem stangarfélagi minn var byrjaður að veiða á hinum bakkanum." Atli segist ekki hafa haft hugmynd um að félagi hans hafi verið með maðk á. „Ég harma það sem félagar mínir gerðu en ég læt ekki taka mig af lífi án dóms og laga."

Hann gagnrýnir einnig hvernig staðið var að málinu af hálfu Stangaveiðifélagsins því hann frétti ekki af úrskurðinum um veiðibannið fyrr en hann las um það í fjölmiðlum. Hann hafi því ekki fengið tækifæri til þess að skýra sitt mál fyrir stjórninni áður en úrskurðurinn var kveðinn upp.

Atli segist ekki skilja hvernig Stangaveiðifélagið geti haft upplýsingar um að hann hafi vitað af broti veiðifélaganna, eins og kemur fram í úrskurðinum. „Ég mun leita míns gegn Stangaveiðifélaginu í þessu máli og er að afla gagna. Mér líður eins og manni sem fer á sveitaball með fjórum vinum, tveir þeirra gerast brotlegir við lögin og mér er refsað af því að ég fór með þeim á ballið. Þetta nær ekki nokkurri átt," segir Atli Gíslason.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×