Innlent

Slátrið vinsælt norðan heiða

Slátursala fer vel af stað og eru dæmi um allt að fjörutíu prósenta söluaukningu. Slátrið þykir gómsætt og fyrirtaks búbót.

Sala á slátri er í startholunum á höfuðborgarsvæðinu en á Akureyri hefur verið hægt að kaupa slátur í nokkra daga. Sumir halda því fram að þjóðlegar hefðir séu allar að fara norður og niður. En það er ekki rétt því fréttastofa Stöðvar 2 fann unga menn í versluninni Hrísalundi sem segjast ekki fá neitt betra en slátur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×