Kynna verðmat Gagnaveitunnar ef ekki koma fram gild rök fyrir leynd 27. september 2007 12:34 Dagur B. Eggertsson og félagar í borgarstjórnarflokki Samfylkingarinnar eru óhressir með leyndina sem hvílir yfir verðmati Gagnaveitunnar. MYND/Pjetur
Meirihluti sjálfstæðismanna og framsóknarmanna í borgarráði hafnaði því í dag að létta leynd af verðmati á Gagnaveitu Reykjavíkur, dótturfélags Orkuveitu Reykjavíkur, sem áður var Lína.net. Verðmatið verður birt á næsta borgarráðsfundi en þá sem trúnaðarmál og hyggjast borgarfulltrúar Samfylkingarinnar kynna það einhliða komi ekki fram gild rök sem styðji leyndina. Fram hefur komið í fjölmiðlum að bæði Glitnir og Landsbankinn hafi metið virði fyrirtækisins en leynd hefur hvílt yfir niðurstöðunum. Heimildir Fréttablaðsins herma hins vegar að verðmætið sé um ellefu milljarðar króna og geti orðið nærri 30 milljarðar árið 2011. Á fundi borgarráðs í dag vildu fulltrúar Samfylkingarinnar að verðmatið yrði gert opinbert. Meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks varð ekki við því eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Degi B. Eggertssyni, oddvita Samfylkingarinnar í borginni. Hins vegar á að kynna matið á næsta fundi borgarráðs en þá sem trúnaðarmál. Samfylkingin lét bóka á fundinum í dag að Orkuveitan hafi látið meta virði Gagnaveitunnar í stjórnartíð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar sem stjórnarformanns OR, en hann var helsti gagnrýndandi Gagnaveitunnar. „Hafi þetta verið leiðangur til að sanna að áralöng gagnrýni hans hafi átt við rök að styðjast mistókst það herfilega," segir í bókuninni. Segir Samfylkingarfólk að ekki verði unað við það að verðmatið verði trúnaðarmál. Einu hagsmunirnir sem þar sé verið að verja séu pólitískir hagsmunir Sjálfstæðisflokksins en áralangur málflutningur þeirra og gagnrýni á stofnun Gagnaveitu Reykjavíkur sé að engu orðinn með ofangreindu verðmati. Almannahagsmunir séu hins vegar afdráttarlaust þeir að sannvirði Gagnaveitunnar verði dregið fram í dagsljósið. Samfylkingin muni fylgja því fast eftir og áskilji sér rétt til að kynna verðmatið einhliða komi ekki fram gild rök sem styðji leyndina.
Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Sjá meira