Innlent

Ákærð fyrir að smygla um 700 grömmum af kókaíni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þrír aðilar hafa verið ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnasmygl.
Þrír aðilar hafa verið ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnasmygl.

Tvær konur á fimmtugsaldri og 25 ára gamall karlmaður hafa verið ákærð fyrir innflutning á tæplega 700 grömmum af kókaíni frá Hollandi til Íslands. Talið er að verulegur hluti af efninu hafi verið ætlaður til sölu í ágóðaskyni. Karlmaðurinn afhenti annarri konunni efnin í Amsterdam í því skyni að þau yrðu flutt til Íslands. Hún og hin konan sem ákærð er földu efnin innanklæða og í líkama sínum. Þannig fluttu konurnar inn efnin þann 13. febrúar síðastliðinn. Fyrirtaka var í málinu í Héraðsdómi Reykjaness í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×