Innlent

Staðinn að veggjakroti í Kringlunni

MYND/Heiða

Lögreglan hafði hendur í hári hálfþrítugs manns sem staðinn var að veggjakroti í Kringlunni í gærkvöld. Eftir því sem lögreglan greinir frá í frétt viðurkenndi maðurinn brot sitt en gat að öðru leyti lítið skýrt þetta háttalag sitt. Maðurinn hefur einu sinni áður komið við sögu hjá lögreglu vegna veggjakrots en lögregla vonar að hann láti nú af þessari iðju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×