Innlent

Vísir kærir launaleynd RÚV

RÚV neitar að gefa upp laun Páls Magnússonar útvarpsstjóra.
RÚV neitar að gefa upp laun Páls Magnússonar útvarpsstjóra. Samsett mynd

Vísir lagði fyrir helgi fram kæru til úrskurðarnefndar um upplýsingalög. vegna þeirrar ákvörðun Ríkisútvarpsins ohf að neita að gefa upplýsingar um mánaðarlaun Páls Magnússonar útvarpsstjóra.

Kæran er lögð fram á grundvelli 3. greinar upplýsingalaga nr. 50 frá árinu 1996 og þeirri staðreynd að RÚV er ekki undanskilið upplýsingalögum samkvæmt lögum um Ríkisútvarpið ohf frá árinu 2007.

Ómar Benediktsson, stjórnarformaður stofnunnar. neitaði í samtali við Vísi að gefa upp laun Páls útvarpsstjóra og sagðist ekki ætla að gera það fyrr en á aðalfundi RÚV á næsta ári. Sú ákvörðun var síðan staðfest skriflega í tölvupósti frá Páli Magnússyni útvarpsstjóra til ritstjóra Vísis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×