Innlent

Björn vill samstarf við Rússa í öryggismálum

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra.
Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra. MYND/Pjetur

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, telur æskilegt að Íslendingar og Rússar hafi með sér samstarf um öryggi skipa á Norðurslóðum. Þetta kemur fram á heimasíðu Björns.

Þar kemur ennfremur fram að um sé ræða siglingaleiðina frá Barentshafi til N-Atlantshafs. Orðrétt segir ráðherra:

„Á hinn bóginn vildi ég sem dómsmálaráðherra, að samstarf yrði við Rússa um öryggi skipa á siglingaleiðinni frá Barentshafi til N-Atlantshafs.“

Björn Bjarnason fundaði með Knut Sorbergert, dómsmálaráðherra Noregs, í Osló í morgun. Á heimasíðu Björns kemur fram að ráðherrarnir hafi rætt um samstarf í kaupum á nýjum björgunarþyrlum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×