Tekjuafkoma hins opinbera aldrei betri 27. september 2007 09:50
Tekjuafkoma hins opinbera var jákvæð um 81 milljarð á síðasta ári samkvæmt tölu Hagstofunnar. Það er besta afkoma hins opinbera frá upphafi og er 7 prósent af landsframleiðslu. Til samanburðar var tekjuafkoman jákvæð um 5,2 prósent af landsframleiðslu 2005 og 0,2 prósent árið 2004. Hagstofan segir að þessa góðu afkomu megi fyrst og fremst rekja til góðrar afkomu ríkissjóðs en fjárhagur sveitarfélaganna hefur einnig snúist til betri vegar síðustu tvö árin, enda þótt hann sé afar misjafn. Árið 2006 nam tekjuafgangur sveitarfélaganna 11 milljörðum króna og árið 2005 4,4 milljörðum króna. Tekjur hins opinbera reyndust nærri 570 milljarðar árið 2006 og hækkuðu um tæpan 81 milljarð króna milli ára. Sem hlutfall af landsframleiðslu námu tekjurnar nærri 50 prósentum og hafa ekki verið hærri áður. Útgjöld hins opinbera námu tæpum 490 milljörðum og hækkuðu um ríflega 53 milljarða króna milli ára, en sem hlutfall af landsframleiðslu lækkuðu þau hins vegar úr 42,3 prósent árið 2005 í 41,8 prósent árið 2006. Fimmtungur til heilbrigðismála og menntamála Heildarútgjöld til heilbrigðismála í fyrra námu rúmum 107 milljörðum, þar af var hlutur hins opinbera 89,8 milljarðar króna en hlutur heimila 17,7 milljarðar, eða 16,5 prósent af útgjöldunum. Af heildarútgjöldum hins opinbera 2006 runnu 20 prósent til heilbrigðismála. Til fræðslumála var ráðstafað 96,5 milljörðum króna á árinu 2006, þar af var fjármögnun hins opinbera 88,2 milljarðar króna og hlutur heimilanna 8,3 milljarðar króna, eða 8,6 prósent. Um fimmtungur útgjalda hins opinbera rennur til fræðslumála. Til almannatrygginga og velferðarmála ráðstafaði hið opinbera 94,6 milljörðum króna á árinu 2006 og nam hækkunin milli ára 3,8 milljörðum króna. Skuldir hins opinbera umfram eignir námu 92 milljörðum króna í árslok 2006 og hafði minnkað um 46,7 milljarða króna milli ára og um 164,5 milljarða króna síðustu tvö árin, eða um 20 prósentustig af landsframleiðslu.
Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Fleiri fréttir Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Sjá meira