Innlent

Eftirlýstur Íslendingur handtekinn í Indlandi

Gunnar Wathne er grunaður um að hafa þvættað hátt í 200 milljónir króna,.
Gunnar Wathne er grunaður um að hafa þvættað hátt í 200 milljónir króna,. MYND/Pjetur

Gunnar Wathne, íslenskur ríkisborgari sem bandarísk yfirvöld hafa leitað í fjögur ár, var handtekinn á Indira Gandhi flugvellinum í Nýju-Delí á Indlandi á föstudag. Þetta kemur fram á indverska vefnum Exrpess India.

Gunnar, sem einnig er nefndur Gunnar Stefán Möller, er á lista banarískra stjórnvalda yfir eftirlýsta menn en dómstóll í Norður-Karólínu gaf út handtökuskipun á hendur honum 15. september 2005 vegna peningaþvættis. Ákæra á hendur honum var gefin út 1. apríl 2003 þegar maður að nafni William Pikard var sakfelldur fyrir að framleiða LSD. Er Gunnar grunaður um að hafa þvættað þrjár milljónir dollara, jafnvirði um 190 milljóna króna, í Rússlandi, fjármuni sem Pikard hafði upp úr fíkniefnastarfseminni.

Indverski miðillinn segir að peningaþvættið hafi farið þannig fram að Pikard hafi tekið við rannsóknarstöðu hjá Háskólanum í Kaliforníu í Los Angeles. Hann hafi fengið rannsóknir sínar fjármagnaðar í gegnum rússneska starfsbróður sinn við háskólann. Fjármunirnir munu hafa komið frá Gunnari en þeir voru upprunalega í eigu Pikards og höfðu verið þvættaðir í fyrirtækjum sem Gunnar stjórnaði í Eistlandi og á fleiri stöðum á árunum 1998-2005.

Gunnar hefur farið fram á að honum verði sleppt úr haldi gegn tryggingu en krafa hans verður tekið fyrir í indverskum dómstól á morgun. Fram kemur í fréttinni að ef Gunnar Watne verði sakfelldur geti hann átti yfir höfði sér 20 ára fangelsisdóm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×