Innlent

Fljótsdalshérað niðurgreiðir frístundastarf

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs ákvað fyrr í mánuðinum að niðurgreiða þátttökugjöld barna og unglinga í íþrótta-, tómstunda-, og æskulýðsstarfi. Öll börn á aldrinum 6 til 18 ára sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu fá 20 þúsund kr. í hvatapeninga á ári samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar.

Fjallað er um málið á heimasíðu Fljótsdalshéraðs í dag. Þar segir m.a. að markmiðið með þessu sé að auka möguleika barna og unglinga í héraðinu til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og frístundastarfi þar með talið tónlistarnámi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×