Innlent

Sérleyfi fyrir olíuboranir í undirbúningi

Össur Skarphéðinsson: Unnið að tillögu um útboð á rannsóknarborunum eftir olíu.
Össur Skarphéðinsson: Unnið að tillögu um útboð á rannsóknarborunum eftir olíu.

Í iðnaðráðuneytinu er nú verið að undirbúa útboð á sérleyfi til rannsóknarboranna eftir olíu innan íslensku landhelginnar. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segir að unnið sé að tillögu um hvort veita fara eigi í útboðið en tillagan verður svo lögð fyrir ríkisstjórnarfund seinna í haust.

"Það er mikil vinna sem liggur að baki útiboði sem þessu," segir Össur Skarphéðinsson í samtali við Vísi. "Það þarf meðal annars lagabreytingar til og einnig þarf að ákveða með hvaða hætti ríkissjóður fái greitt fyrir þessar boranir ef olía finnst."

Fram kemur í máli Össurrar að þetta mál sé ekki nýtt af nálinni en það var rætt á alþingi síðast árið 1991. Á þeim tíma var olíuverð of lágt til að slík vinnsla gæti borgað sig og tækni heldur ekki til staðar þar sem bora þarf niður fyrir 1000 metra sjávardýpi.

Svæðið sem hér um ræðir er í norðausturhluta landhelginnar og kallast Drekasvæðið en það liggur að miðlínunni við Jan Mayen. Reikna má með að töluverður áhugi sé til staðar á að fá leyfi fyrir rannsóknarborunum í kjölfar fregna um mikinn olíufund úti fyrir ströndum Austur-Grænlands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×