Innlent

Árekstur við Kaplakrika í dag

Tækjabíll slökkviliðsins.
Tækjabíll slökkviliðsins. MYND/GVA

Tveir voru fluttir á slysadeild eftir árekstur á Reykjanesbraut við Kaplakrika rétt fyrir tvö í dag. Slökkvilið þurfti að beita klippum til þess að ná hinum slösuðu úr bílum sínum.

Áreksturinn varð með þeim hætti að öðrum bílnum var ekið inn í hlið hins. Fólkinu var ekið á slysadeild en meiðslin reyndust ekki alvarleg og voru þau útskrifuð að skoðun lokinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×