Innlent

Torfærukapparnir reyndust allir edrú

Hin árlega torfærukeppni var haldin á Hellu um helgina og tókst hún vel að sögn mótshaldara. Á sunnudagsmorgun voru allir keppendur látnir blása í öndunarmæli hjá lögreglunni og reyndust þeir allir vera í góðu lagi. Þetta samstarf lögreglunnar á Hvolsvelli og Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu hefur varað í nokkur ár og mun vara áfram.

Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli voru tveir dansleikir haldnir í héraðinu, annar í Gunnarshólma og hinn í Kanslaranum á Hellu og fóru þeir vel fram að sögn vakthafandi varðstjóra. Eitthvað var þó um unglingadrykkju í kringum annan þeirra.

Lögregla vil hvetja foreldra til að hafa eftirlit með börnum sínum sem hyggjast sækja slíkar skemmtanir sem leyfðar eru börnum 16 ára og eldri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×